Innlent

Björgvin vildi ekki verða ráðherra

Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og fyrrum viðskiptaráðherra, gaf ekki kost á sér í ráðherraembætti nýrrar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Hann sendi Jóhönnu formlegt bréf þess efnis fyrir viku síðan. Þetta kemur fram á fréttavefnum Pressan.is

Í bréfinu kemur fram að Björgvin vilji ekki sæti í ríkisstjórn að nýju fyrr en að umfjöllun og úttekt á fjármálakreppunni á Íslandi sé lokið.

„Nú styttist í að skipað verði til verka í nýrri stjórn. Ég sækist ekki eftir ráðherraembætti fyrr en síðar eða þegar kominn er botn í umræðu og uppgjör um fjármálakreppuna. Niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis og slíkar úttektir koma fram. Þeirri niðurstöðu kvíði ég ekki,“ segir í bréfinu sem Pressan.is vitnar í.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×