Nokkrir bindislausir á þingi 22. maí 2009 03:00 Unnur Brá Konráðsdóttir, Þór Saari og Guðbjartur Hannesson voru öll bindislaus í þinginu í gær. fréttablaðið/gva „
Ég hef tekið eftir því að flestir eru enn þá með hálstau og ég er mjög ánægð með það. Persónulega finnst mér þingmennirnir flottari með bindi, en aðalatriðið er að þeir séu vel til hafðir. Og það eru þeir allir. Þeir eru glæsilegir á að líta úr forsetastólnum,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Bindisskylda þingmanna var afnumin þegar þinghald hófst að loknum alþingiskosningum. Ásta Ragnheiður tók við stöðu forseta Alþingis á sama tíma og er því í betri aðstöðu en flestir til að vega og meta breytingarnar. „Ég hef tekið eftir nokkrum þingmönnum sem kjósa að nýta sér afnám bindisskyldunnar, og það eru menn úr öllum flokkum. Mér hefur alltaf fundist að ákveðin virðing fyrir starfinu felist í því að klæða sig upp, en fólki er auðvitað í sjálfsvald sett hvernig það hefur þessa hluti.“ Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, sem barðist fyrir afnámi bindisskyldunnar, segir marga hafa komið til sín og þakkað sér fyrir. „Sex þingmenn af fimmtán í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra voru bindislausir. Það voru reyndar konur, en við gætum fyllsta jafnréttis og teljum alla með. Í þinginu á þriðjudag taldi ég fjóra eða fimm bindislausa karlmenn. Ég er reyndar hættur að velta þessu fyrir mér, en umræðan var svo leiðinleg að ég gaf mér tíma til að telja,“ segir Þór og vísar til umræðu um eignaumsýslufélag ríkisins í þinginu. - kg
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Báti var siglt yfir kajakræðara Langar biðraðir á Keflavíkurflugvelli óásættanlegar „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Sjá meira