Innlent

Eigendur 400 félaga á huldu

Skúli Eggert Þórðarson
Skúli Eggert Þórðarson

Ríkisskattstjóri vill upplýsingar frá íslenskum bönkum um eignarhald 400 félaga sem tengjast Íslendingum og eru skráð í erlendum skattavinjum. Að sögn Ríkisútvarpsins á að kanna hvort svikið hafi verið undan skatti í gegnum þessi félög.

Haft er eftir Skúla Eggerti Þórðarsyni ríkisskattstjóra að slóð félaganna sé vel falin. Reynist eigandi félags Íslendingur eða íslenskt félag verði athugað hvort gerð hafi verið grein fyrir því í skattframtali. „Skúli segir að séu framtalsskil viðkomandi stórlega athugunarverð verði málinu vísað til skattrannsóknarstjóra sem þá taki ákvörðun um framhaldið," segir á ruv.is.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×