Um 2.300 fá ekki vinnu hjá borginni 22. maí 2009 03:00 Um 3.600 manns sóttu um sumarvinnu hjá Reykjavíkurborg sem er miklu meira en undanfarin ár að sögn Halls Páls Jónssonar, mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar. „
Reykjavíkurborg getur ekki ráðið alla sem eru atvinnulausir í borginni. Það segir sig sjálft. Borgin er hins vegar að reyna að gera sitt besta til að bregðast við vandanum,“ segir Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar. Um 3.600 sóttu um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg. Það er miklu meira en hefur verið undanfarin ár, að sögn Halls. Ráðið verður í 1.240 stöður sem er svipað og var í fyrra. Á undanförnum árum hafa flestir umsækjendur verið framhalds- og háskólanemar að sögn Halls. Enginn aldurshópur hafi hins vegar forgang fram yfir annan. „Við reynum að dreifa því á hópana eins og kostur er svo hægt sé að gæta jafnræðis. Sautján ára unglingur hefur engan sérstakan forgang fram yfir 23 ára,“ segir Hallur. Ekki hefur verið ráðið í öll stöðugildin en stjórnendur eru að ganga frá málum þessa vikuna. Sumir hefja störf í maí, aðrir í júní og sumir jafnvel í júlí. Um 260 vinnustaðir eru á vegum Reykjavíkurborgar. Þar fyrir utan er Vinnuskóli Reykjavíkur, sem ræður börn á aldrinum 13-16 ára. Um 4.000 börn verða ráðin sem er umtalsvert meira en á undanförnum árum, að sögn Halls. „Síðan erum við að reyna að ráða fólk á atvinnuleysisskrá í sérstök átaksverkefni.“ Allir sem sóttu um sumarstörf hjá Kópavogsbæ munu fá vinnu. Ráðið hefur verið í milli sjö hundruð og átta hundruð stöður samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ. „Það verða allir ráðnir sem eiga lögheimili í Garðabæ og hafa sótt um starf,“ segir Margrét S. Guðjónsdóttir, deildarstjóri starfsmannahalds hjá Garðabæ. Hins vegar verður vinnutíminn skertur frá því sem verið hefur í klukkustunda- og dagafjölda. Engin yfirvinna verður í boði. „Í átakshópi vegna atvinnuástandsins fá 17 ára krakkar vinnu í sex stundir á dag í sjö vikur. Þeir sem eldri eru fá sjö stundir á dag í átta vikur,“ segir Margrét. Þeir sem vinna hins vegar við garðyrkju og í áhaldahúsinu fá lengri vinnutíma, í átta stundir á dag. „Vinnuskólinn, sem er fyrir 14-16 ára krakka, er aðeins öðruvísi, en þau yngstu fá 91 klukkustundir yfir sumarið og hinir um 170-180,“ segir Margrét. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira