Innlent

Á stolnum bíl í annarlegu ástandi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði karl og konu á stolnum bíl undir morgun og reyndust þau bæði í annarlegu ástandi. Bílnum var stolið í Reykjavík í gær en öryggisverði í versluninni 10-11 við Barónstíg leist ekki á fólkið, þegar það kom þar að versla á sjötta tímanum í morgun, og lét lögreglu vita, sem leiddi til handtökunnar skömmu síðar. Fólkið á afbrotaferil að baki og gistir nú fangageymslur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×