Fagna löngu tímabærum afsögnum ráðherra 26. janúar 2009 18:06 Hörður Torfason einn af forsvarsmönnum Radda fólksins.
Raddir fólksins fagna löngu tímabærum afsögnum Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. Ástæða er til að benda á að fyrrverandi viðskiptaráðherra sá sóma sinn í að axla pólitíska ábyrgð og viðurkenna þátt sinn í efnahagslegri óstjórn fráfarandi ríkisstjórnar en fyrrverandi forsætisráðherra hverfur frá völdum nauðugur viljugur, án þess að biðja þjóðina afsökunar á axarsköftum sínum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Röddum fólksins. Þar segir ennfremur að það sé fagnaðarefni þegar ein óvinsælasta ríkisstjórn í sögu lýðveldisins hverfi loks frá völdum. „Þessi niðurstaða fékkst með órofa samstöðu þjóðarinnar og sögulegum mótmælaaðgerðum. 80% þjóðarinnar reis upp og sagði pólitískri spillingu og flokksræði stríð á hendur. Ljóst er að landsmenn geta ekki sætt sig við að vanhæfir þingmenn geri enn eina atlöguna að lýðræðinu. Við krefjumst þess að utanþingsstjórn verði mynduð án tafar og þingmenn verði látnir axla ábyrgð. Fráfarandi ríkisstjórn var búin að gefa ádrátt um kosningar 9. maí n.k. Nú hafa mál skipast þannig að fráfarandi forsætisráðherra er búinn að skila umboði sínu og við blasir að stjórnarkreppa ríkir í landinu. Við þessar aðstæður er óásættanlegt að umboðslausir stjórnmálamenn véli með dagsetningu kosninga. Þjóðin sjálf verður að taka af skarið og ákveða réttan tíma fyrir kosningar að því tilskyldu að fyrir liggi drög að nýrri stjórnarskrá og trygging fyrir því að gamla siðspillta flokksræðið hverfi á öskuhauga sögunnar. Fyrir liggur að fráfarandi viðskiptaráðherra tók loksins á sig rögg í gær og rak forstjóra og stjórn Fjármálaeftirlitsins. Um leið og Raddir fólksins fagna þessari aðgerð viljum við benda á að samkvæmt fréttum mun fráfarandi forstjóri ekki láta af störfum fyrr en 1. mars nk. Auk þess var það síðasta verk stjórnar Fjármálaeftirlitsins að ganga frá starfslokasamningi við fráfarandi forstjóra upp á liðlega tuttugu milljónir króna. Það er skilyrðislaus krafa Radda fólksins að forstjóri Fjármálaeftirlitsins víki tafarlaust og starfslokasamningur við hann verði ógiltur. Ástæðulaust er að fjölyrða um dapurlega stöðu stjórnar Seðlabankans. Vitað er að hún hefur ekkert traust landsmanna og erlendis er hún aðhlátursefni. Soldáninn á Svörtuloftum situr og situr og situr meðan þjóðinni blæðir út. Hann hefur treyst á tangarhald sitt á fráfarandi forsætisráðherra og beitt siðleysi og blekkingum til að breiða yfir eigin valdníðslu og landráð. Því verður einfaldlega ekki unað deginum lengur að gjörsamlega vanhæfur uppgjafarstjórnmálamaður véli með fjöregg þjóðarinnar. Stjórn Seðlabankans verður að víkja."
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira