Hefðu betur hlustað á stjórnarandstöðuna í október 26. janúar 2009 15:37
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna sagði í ræðu sinni á Alþingi í dag að ríkisstjórnin hefði betur tekið tilboði stjórnarandstöðunnar um þjóðstjórn í október. Hann sagði vert að velta því fyrir sér hvort hlutum væri ekki betur fyrir komið í dag ef því tilboði hefði verið tekið. Steingrímur sagðist hugsi yfir því hve harkalega stjórnarslitin hefðu farið fram. Hann setti spurningamerki við þau skilaboð sem væri verið að senda út í heim með því að skilja með jafn óvinsamlegum hætti og raunin hafi verið um. Steingrímur sagði einnig að þó að þjóðstjórnarnafnið hljómi vel dygði það ekki til, slík stjórn yrði að vera fær um að taka til hendinni. Hann sagðist jafnframt hafa ákveðnar efasemdir um að það geti gengið eftir. Vinstri grænir eru þrátt fyrir það tilbúin til að axla ábyrgð og enginn kostur er útilokaður í því sambandi, sagði Steingrímur en bætti við að tíminn sé hins vegar dýrmætur. Óvissunni verði að eyða og mynda starfhæfa stjórn sem geti stýrt málum uns þjóðinni gefst kostur á því að velja nýja ríkisstjórn. „Það er ekkert minna sem okkar bíður en að endurmóta þetta samfélag úr þeim rústum sem ríkisstjórnir síðustu ára hafa kallað yfir okkur," sagði Steingrímur.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira