Strætó fækkar ferðum 26. janúar 2009 10:27
Strætó bs. mun fækka ferðum frá 1. febrúar vegna erfiðari rekstraraðstæðna í kjölfar bankahrunsins. Helstu breytingarnar eru að allar helstu leiðir, að leiðum 1 og 6 undanskildum, munu aka á hálftíma fresti utan annatíma virka daga og leiðir 21, 22, 33, 34, 35 og 36 á klukkutíma fresti. Jafnframt munu leiðir 2, 4, 5, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 19, 24 og 28 aka á klukkutíma fresti á kvöldin og um helgar. Þjónustutími Strætó mun ekki styttast að öðru leyti en því að akstur mun hefjast tveimur tímum síðar en verið hefur á öllum leiðum á sunnudögum og helgidögum. Vagnar munu áfram aka fram undir miðnætti. Að auki verða sértækar breytingar á nokkrum leiðum. Leið 4 ekur einungis milli Hamraborgar og Breiðholts utan dagtíma, leið 17 mun einungis aka á dagtíma á virkum dögum og milli kl. 12:00 og 19:00 á laugardögum, leið 23 (Álftanes) mun eingöngu aka á annatímum og leiðir 31 og 32 munu eingöngu aka á klukkutíma fresti. „Það er að sjálfsögðu ekki óskastaða að þurfa að draga úr þjónustu nú þegar notkun fólks á strætó hefur aukist jafnt og þétt síðustu misserin. Við teljum engu að síður, í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem við stóðum frammi fyrir í rekstri Strætó, að við höfum valið besta kostinn sem í boði var. Langstærsti hluti farþega okkar tekur strætó á morgnana og síðdegis og því leggjum við allt kapp á að halda þjónustustigi eins háu á þessum tímum og mögulegt er og þannig tryggja að sem fæstir verði fyrir óþægindum vegna þessara breytinga," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Í tilkynningu frá Strætó segir að breytingarnar séu gerðar með hliðsjón af ítarlegum rannsóknum Strætó bs. á farþegafjölda og nýtingu strætóleiða. Mest sé dregið úr þjónustu á þeim tímum þegar farþegar eru fáir, en minna þegar nýting er meiri. Á leiðum 1 og 6, sem flytji flesta farþega dag hvern, verði til að mynda engar breytingar að því undanskildu að akstur hefjist tveimur tímum síðar en áður á sunnudagsmorgnum.
Mest lesið Lét öllum illum látum og fær engar bætur Innlent Frystir Facebook hópinn og rýfur tengsl við Sósíalistaflokkinn Innlent Málið alvarlegra en stjórnmálamenn gera sér grein fyrir Innlent Sparnaðurinn bitni á fjölskyldum Innlent Springur Starship í þriðja sinn í röð? Erlent Flugmaðurinn hafi verið mjög heppinn Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Innlent Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Fleiri fréttir Sparnaðurinn bitni á fjölskyldum Málið alvarlegra en stjórnmálamenn gera sér grein fyrir Frystir Facebook hópinn og rýfur tengsl við Sósíalistaflokkinn Flugmaðurinn hafi verið mjög heppinn Lét öllum illum látum og fær engar bætur Börnin fagna litlu sigrunum með bjölluhringingu Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Kaup á kínverskum kísil „með ólíkindum“ og sérsveitaræfing Erfiðast að læra íslenskuna Afnema lengri opnunartíma í ákveðnum leikskólum borgarinnar Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Fjórða hvert ungmenni talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína Ungliðahreyfing Viðreisnar ályktar gegn ákvörðun ríkisstjórnarinnar Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Áhyggjuefni hversu fáir treysta íslenskum fjölmiðlum Uppsagnir yfirvofandi á Húsavík Hnífi beitt í heimahúsi á Húsavík Frábiður sér að nördum sé líkt við Sósíalista Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Fyrrverandi þingmenn í nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Mannréttindadómstóllinn sýknar ríkið af kröfum mótmælenda Flestir urðu varir við „falsfréttir“ fyrir síðustu alþingiskosningar Margrét Hauksdóttir er látin Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra Sjá meira