Lækka á fjárlagahallann um 86 milljarða á tveimur árum 19. júní 2009 06:00 Ríkisstjórnin hyggst lækka fjárlagahallan mikið á næstu mánuðum og árum.
Skera á ríkisútgjöld niður og afla nýrra tekna til að ná hallanum á ríkissjóði niður um samtals 86 milljarða króna á árunum 2009 og 2010. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður um sextíu prósentum þessarar upphæðar náð fram með niðurskurði útgjalda og um fjörutíu prósentum með auknum tekjum. Ætlunin er sú að á árinu 2013 verði fjárlögin hallalaus. Meðal hagræðingaraðgerða sem stefnt er að er mikil endurskipulagning ríkisstofnana. Þar á meðal mun vera rætt um sameiningu Varnarmálastofnunar og Landhelgisgæslunnar og verulegar breytingar á embætti Ríkislögreglustjóra. Þá á að veita verkefnum sem nú eru hjá ríkinu yfir á sveitarfélögin. Söfn á landsbyggðinni verða sameinuð og sumar stofnanir lagðar niður. Rætt er um fækkun sendiráða og sölu sendiráðsbygginga erlendis, mikla fækkun sýslumannsembætta og fækkun skattstofa, sem verði sameinaðar Ríkisskattstjóra. Spara á í rekstri ríkisins. Meðal annars verði ferðakostnaður á næsta ári aðeins helmingur þess sem hann var hjá ríkinu í fyrra. Lækka á útgjöld vegna stjórna og nefnda um helming og forðast í lengstu lög að ráða utanaðkomandi ráðgjafa til ríkisins. Laun hjá yfirmönnum ríkisstofnana og -fyrirtækja verða felld undir kjararáð. Fara á sérstaklega yfir laun ríkisstarfsmanna með mánaðartekjur yfir 400 þúsund krónum og lækka hlutfallslega mest laun þeirra sem hafa hæstu launin. Aksturskostnaður og risna verða skorin niður. Af áðurnefndum 86 milljörðum má nefna að spara á 5,5 milljarða í almannatryggingakerfinu, til dæmis með lækkun á frítekjumarki ellilífeyrisþega. Draga á úr framlögum til Þjóðkirkjunnar um 450 milljónir og 420 milljónir sparist með því að hámarksgreiðsla úr Fæðingarorlofssjóði verði 350 þúsund krónur. Virðisaukaskattur á sumar matvörur, á borð við sykur, sem áður báru sjö prósenta skatt, verður eftirleiðis 24,5 prósent. Til að standa straum af sívaxandi útgreiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði verður tryggingagjald fyrirtækja hækkað úr 0,65 prósentum í 2,21 prósent.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Sjá meira