Póst-módernísk tilvísun í afa 10. október 2009 06:00 Eins og afi Dóri segist ekki eiga í vandræðum með að fá athygli frá kvenþjóðinni með gleraugun á nefinu. „
Gleraugun eru póst-módernísk tilvísun í afa,“ segir rapparinn, grínistinn og listaháskólaneminn Halldór Halldórsson, best þekktur sem Dóri DNA. Dóri hefur vakið athygli fyrir reffilega framkomu undanfarið og vilja einhverjir þakka það nýjum gleraugum á nefi rapparans. Gleraugun er mjög lík þeim sem nóbelskáldið Halldór Laxness, afi Dóra, bar á efri árum sínum og það er engin tilviljun. „Erum við ekki alltaf undir áhrifum? Þetta er samt bara eitthvað pís of sjitt sem ég fann í einhverri draslverslun. Þau eru samt svipuð og afi var með,“ segir Dóri um gleraugun sem eru meira fyrir stílinn en notagildið, enda ekki með sjóngleri. Fyrirmyndin er geymd á heimili Nóbelskáldsins að Gljúfrasteini, en Dóri leggur ekki í að setja þau upp. „Málið er að hann sá ekki rassgat, gleraugun hans voru svo þykk að það er nánast eins og að vera með sjónauka á sér.“ Dóri er þekktur kjaftaskur og segir að alla ævi hafi hann glímt við að vera ekki tekinn alvarlega, en nú sé það úr sögunni. „Fólk hlustar núna,“ segir hann og játar að gleraugun skemmi ekki fyrir skapandi skrifum, en Dóri stundar nám í fræðum og framkvæmd í LHÍ. „Gleraugun setja mig í ákveðnar stellingar. Svo hjálpa þau líka við að setja í kellingar. Eins og sést á myndinni þá er ég sláandi myndarlegur með þau.“ - afb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira