Kettlingarnir fengu ný heimili 26. júní 2009 05:00 Allir kettlingarnir þrjátíu eru komnir með nýtt heimili og hafa verið örmerktir. Mynd/GVA
Eins og Fréttablaðið greindi frá í lok maí höfðu aldrei fleiri kettlingar þurft að leita húsaskjóls hjá Sigríði Heiðberg í Kattholti. Þeir voru alls þrjátíu talsins, sumir illa á sig komnir eftir að eigendurnir höfðu skilið þá eftir upp á von og óvon. Sigríður sagði jafnframt að kreppan væri komin í Kattholt, minna væri um frjáls fjárframlög frá almenningi og því gengi erfiðlega að reka starfsemina. Fréttin virtist hreyfa við ansi mörgum dýravinum því allir kettlingarnir þrjátíu eru nú komnir með ný heimili. „Þeir voru örmerktir og ég hef komið því þannig í kring að þeir verða allir teknir úr sambandi,“ segir Sigríður. Þá hafa dýravinir flykkst upp í Kattholt með mat og peninga þannig að hægt væri að halda gangandi þeirri starfsemi sem hefur reynst hinum loðnu ferfætlingum svo vel. Sigríður segir reyndar að hún muni varla eftir öðrum eins gestafjölda og komið hafi síðan fréttin birtist. „Ég er afar þakklát öllu þessu góða fólki sem hefur komið hingað, það hefur verið einstaklega velviljað,“ segir Sigríður en sem dæmi má nefna að börn hafa selt blóm til styrktar Kattholti og svo mætti lengi telja. Við þetta má svo bæta því að íslenski kattamaturinn Murr verður bráðum í boði fyrir þá ketti sem þurfa að dvelja í Kattholti til skemmri eða lengri tíma.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira