Innlent

Ætlar að endurskoða útgefnar veiðiheimildir

Steingrímur J Sigfússon
Steingrímur J Sigfússon MYND/STEFÁN

Steingrímur J. Sigfússon fjármála-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í nýrri ríkisstjórn segir eitt af sínum fyrstu verkefnum verða að fara yfir aukningu á ákveðnum veiðiheimildum sem gefnar hafa verið út á þessu ári og því næsta.

Þetta sagði Steingrímur í samtali við fréttastofu Sjónvarpsins en eins og komið hefur fram í fréttum samþykkti Einar K. Guðfinnsson fyrrverandi sjávarútvegsráðherra nýjar veiðiheimildir fyrir hrefnur og langreyðar til næstu fimm ára rétt áður en hann lét af embætti.

Steingrímur sagði að sér fyndist glaðara yfirbragð vera nú yfir fólki og tíðinda væri að vænta af endruskipulagningu í fjármálakerfinu á næstu dögum.

„Það verða fréttir af því strax á morgun, ef ekki á morgun þá á þriðjudag," sagði Steingrímur glaður í bragði.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×