Getur ekki greitt skuldirnar að sinni 28. apríl 2009 06:30 Magnús Reynir.
Fjárhagsstaða Frjálslynda flokksins er slæm og þarf flokkurinn að semja við lánardrottna um greiðslufrest á skuldum. Flokkurinn náði ekki því 2,5 prósenta marki í kosningunum á laugardag sem tryggir framboðum ríkisframlög. Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, telur að þar með hafi flokkurinn orðið af 12-14 milljóna króna árlegum ríkisframlögum út kjörtímabilið. „Þetta var tvöfalt áfall," segir Magnús Reynir og vísar til þess að annars vegar hafi Guðjón A. Kristjánsson formaður fallið út af þingi og hins vegar hafi 2,5 prósenta markið ekki náðst. Hann vill ekki láta uppi hve mikið flokkurinn skuldar; stofnanir flokksins eigi eftir að fara yfir málið. Skuldirnar séu þó ekki stórvægilegar og fyrst og fremst vegna kostnaðar sem féll til í kosningabaráttunni. „Við fórum gætilega og eyddum ekki meiru en við töldum brýna nauðsyn á." Ljóst sé þó að ekki sé hægt að greiða skuldirnar að sinni, um þær verði að semja. Magnús kveðst bjartsýnn á að þeir sem eigi peninga inni hjá flokknum sýni stöðunni skilning og reyni að koma til móts hann. Spurður hvort mögulegt sé að Frjálslyndi flokkurinn fari í gjaldþrot segist Magnús ekki telja líkur á því. Guðjón A. Kristjánsson lánaði Frjálslynda flokknum fjórar milljónir fyrir nokkrum árum. Magnús Reynir segir að gert hafi verið upp við hann að fullu.- bþs
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fleiri fréttir Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Sjá meira