Innlent

Norrænir sérsveitamenn æfðu sig á Íslandi

Sérsveitarmennirnir nýttu sér einnig nokkrar af þeim fjölmörgu ókláruðu byggingum sem prýða höfuðborgarsvæðið um þessar mundir.
Sérsveitarmennirnir nýttu sér einnig nokkrar af þeim fjölmörgu ókláruðu byggingum sem prýða höfuðborgarsvæðið um þessar mundir.

Sérsveit ríkislögreglustjóra stóð fyrir námskeiði í síðustu viku með þátttöku sérsveita frá Noregi, Danmörku og Finnlandi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ýmis atriði varðandi klifur og sig hafi verið æfð og fóru æfingar að mestu fram í klettabeltum Esjunnar og á Suðurnesjum.

„Meðan á æfingum stóð höfðu sérsveitarmennirnir aðstöðu á öryggissvæði Varnarmálastofnunar á Miðnesheiði, en þar er aðstaða mjög góð og allur aðbúnaður eins og best verður á kosið," segir einnig.







Þá segir að samstarf sérsveita Norðurlandanna eigi sér áralanga sögu og er mikilvægur þáttur í starfsemi sérsveitanna. „Auk þess að æfa saman gefst mönnum kostur á að bera saman bækur sínar um aðferðir við úrlausn verkefna, búnað sérsveitanna svo dæmi séu tekin," segir að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×