Hálfur milljarður í Hallgrímskirkjuturn 22. júní 2009 06:00 Steypuskemmdir í turni Hallgrímskirkju eru sagðar vera miklu meiri en upphaflega var talið.Fréttablaðið/Arnþór
Viðgerðir á turni Hallgrímskirkju stefna nú í að kosta nær tvöfalt meira en upphaflega var talið. Reykjavíkurborg og ríkið eru beðin að auka framlag sitt til endurbótanna. „Ef ekki kemur til viðbótarfjármagn mun verkið stöðvast fljótlega og afleiðingarnar verða þær að viðgerðir sem þegar hafa verið framkvæmdar munu liggja undir skemmdum,“ segir í greinargerð sem fylgir tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um að borgin veiti meira fé til Hallgrímskirkju. Reykjavíkurborg ákvað á árinu 2007 að greiða 12,4 milljónir á ári fram til ársins 2013 til viðgerðanna á turni Hallgrímskirkju. Ríkið leggur fyrir sitt leyti fram jafn háa upphæð. Nú leggur borgarstjóri til að framlengja þessar greiðslur allt til ársins 2019 að því tilskildu að ríkið geri slíkt hið sama. Þannig munu greiðslur frá ríki og borg á endanum nema 322 milljónum. Í greinargerð með tillögu borgarstjóra kemur fram að upphafleg kostnaðaráætlun fyrir verkið hafi hljóðað upp á 228 milljónir króna. „Þegar viðgerðir hófust kom hins vegar í ljós að steypuskemmdirnar voru miklu meiri en upphaflega var talið,“ segir í greinargerðinni, þar sem fram kemur að nú sé áætlað að viðgerðarkostnaðurinn verði 540 milljónir króna. Í greinargerð borgarstjóra er sérstaklega vikið að því hvort jafnræðisregla kunni að vera brotin með því að greiða umræddar fjárhæðir úr borgarsjóði í þetta verkefni fyrir einn tiltekin trúarsöfnuð, það er þjóðkirkjuna. „Um er að ræða höfuðkirkju landsins og eitt helsta kennileiti Reykjavíkur-borgar sem jafnframt er hluti af byggingarsögu Íslands,“ segir í rökstuðningi fyrir því að jafnræðisregla stjórnsýslulaga komi ekki í veg fyrir þessa fjárveitigu. „Enda fara ólögbundin verkefni sveitarstjórna eftir efnum og ástæðum hverju sinni,“ segir þar enn fremur. Í bréfi Jóhannesar Pálmasonar, formanns sóknarnefndar Hallgrímskirkju, og fleiri til kirkjumálaráðherra, borgarstjórans og biskups Íslands kemur fram að ákveðið hafi verið að halda verkinu áfram þrátt fyrir óvissu með fjármögnun. Frestun framkvæmdanna væri kostnaðarsöm auk þess sem ný og gömul steypa í kirkjuturninum yrði þá berskjölduð. „Raunverulegur kostnaður ríkisins við áframhald framkvæmda er litlu meiri en annars sennilegur kostnaður ef verkið stöðvast,“ segir meðal annars í bréfinu. Afgreiðslu tillögu borgarstjórans var frestað á fundi borgarráðs á fimmtudag. gar@frettabladid.is Hanna Birna Kristjánsdóttir
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira