Davíð reyndi að hrista blaðamenn af sér 9. febrúar 2009 18:38
Davíð Oddsson var hvergi sjáanlegur í Seðlabankanum í morgun en þar komu tæplega eitthundrað mótmælendur saman til að krefjast þess að hann víki burt. Davíð sýndi snilldartakta þegar hann hristi blaða og fréttamenn af sér við Landspítalann. Mótmælendurnir við Seðlabankann skiptu liði í morgun. Einn hópur stóð vaktina við aðalinngang bankans en hinn vaktaði bílakjallarann. En maðurinn sem allt snérist um var hvergi sjáanlegur. Upp úr klukkan 10 fóru mótmælendur að missa þolinmæðina og það fækkaði jafnt og þétt í hóp þeirra. Um það leiti fréttum að því að Davíð væri í Vestubænum og ákváðum því að reyna að ná tali af honum þar. Við mættum honum þegar hann ók út af bílstæði við Grandaveg þar sem okkur skilst móðir hans búi en til þess að geta spurt hann út í bréfasamskipti hans við Jóhönnu Sigurðardóttir keyrðum við í humátt eftir honum alla leið inn á bílastæði Landspítalans við Hringbraut. Þegar Davíð kom út úr bílnum spurði blaðamaður DV sem þar var á svæðinu hann spurningar. Davíð brást hinn versti við og sagðist vera á leiðinni í læknisskoðun. Því næst gekk Davíð inn um aðalinngang spítalans. En svo virðist sem hann hafi alls ekki verið á leiðinni í læknisskoðun heldur hafi hann ætlað að losa sig við fréttamenn og spurningar þeirra. Því um mínútu síðar sást Davíð ganga út um dyr sem snúa út að Eiríksgötu. Þar beið hans nefnilega annar bíll og einkabílstjóri frá Seðlabankanum. Bíllinn beið bakdyramegin eftir Davíð. Inn í honum sat einkabílstjóri. Þegar Davíð kom auga á að fréttamenn höfðu orðið hans varir snerist hann á hæli og fór inn á spítalann aftur. Skömmu síðar bárust svo fréttir af því að Davíð væri kominn inn í Seðlabanka en þá voru heldur engir mótmælendur til að taka á móti honum. Davíð hefur undanfarnar vikur ítrtekað hafnað ósk fréttastofu um viðtal.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira