Innlent

Bankastjórarnir svara ekki

Bankastjórar Seðlabankans hafa enn ekki svarað bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem hefur óskað eftir því að þeir láti af störfum í bankanum.

Í bréfinu voru þeir beðnir um að svara í dag en Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins staðfesti við fréttastofu nú rétt fyrir fimm að engin svör hefðu borist.

Forsætisráðherra mun á morgun mæla fyrir frumvarpi þar sem stöður bankastjóranna þriggja eru lagðar niður og einn bankastjóri verði ráðinn í staðinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×