Óvíst hvort Héðinsfjarðargöng dragi úr fólksfækkun Karen Kjartansdóttir skrifar 29. nóvember 2009 12:08 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Óvíst er að Héðinsfjarðargöng muni verða til þess að draga úr fólksfækkun á Ólafsfirði og Siglufirði eins og vonast er til. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, prófessor í Háskólanum á Akureyri sem stýrt hefur umfangsmikill rannsókn sem snýr að mögulegum áhrifum gangnanna. Ólafsfjörður og Siglufjörður hafa um langt skeið þurft að glíma við umtalsverða fólksfækkun. Vonast er til að eftir að Héðinsfjarðargöng komast í gangið snúist þessi þróun við. Það er reyndar ein meginröksemdin fyrir þeirri fjárfestingu sem göngin eru en talið er að þau muni koma til með að kosta um það bil 10 milljarða. Niðurstöður rannsóknar sem tíu kennarar við Háskólann á Akureyri tóku þátt í og Þóroddur Bjarnason prófessor stýrði leiðir í ljós að verði engar samgöngubætur gerðar muni íbúum fækka um helming á um það bil 35 árum. Hins vegar leiða niðurstöðurnar í ljós að óvíst er hvort göngin nái að snú þeirri þróun við. Bendir hann á að athuganir á mannlífi í byggðum landsins leiði í ljós að flestir bæir eru sem ná um það bil þúsund manna íbúafjölda eigi tiltölulega bjarta framtíð fyrir sér þótt mikil hreyfing sé á íbúum til og frá svæðinu. Undantekningarnar séu Ólafsfjörður, Siglufjörður og Vestmannaeyjar. Þar sé farið að vanta svo stóran hluta fólks á barneignaraldri. Til að mynda hafi 40 börn verið í árgangi í Siglufirði og Ólafsfirði samanlagt fyrir áratug. Nú séu þau 14. Þegar skil séu orðin svona skörp séu staðir venjulega komnir á endastöð. Óvíst sé að göng nái að breyta nokkru. Þóroddur vill þó ekki slá framtíð byggðanna af og segir afar áhugavert verði að sjá hver áhrif þess verði á Eyjafjarðarsvæðinu. Þau séu þó líkleg til að draga úr þeirri þjónustu sem þegar er veitt inn í Siglufirði og Ólafsfirði nú þegar þar sem íbúarnir komi til með að sækja hana í stærri byggðarkjarna í nágrenninu.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira