Innlent

Hálka víða um land

Vegagerðin varar ökumenn við hálku á þjóðvegum víða um land, einkum á fáfarnari leiðum og á fjallvegum. Þannig er flughált í kringum Þingvallavatn og á Bláfjalla- og Krýsuvíkurleið. Sömuleiðis er flughált á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vatnsskarði eystra.

Á Vestfjörðum er hálka á fjallvegum og óveður er á Steingrímsfjarðarheiði. Þæfingsfærð er um Klettsháls en verið er að moka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×