Innlent

Borgin gerir úttekt á viðbragsáætlun gegn einelti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Misbrestur er á að eineltisáætlanir séu virkar, segir Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi. Mynd/ Valli.
Misbrestur er á að eineltisáætlanir séu virkar, segir Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi. Mynd/ Valli.
Mannréttindastjóra og mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar verður falið að skoða og gera úttekt á viðbragðsáætlun borgarstofnana gegn einelti. Tillaga Oddnýjar Sturludóttur borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, þessa efnis var samþykkt á fundi borgarstjórnar í dag. Horft verður til skóla, leikskóla, félagsmiðstöðva, frístundaheimila sem og allra starfstöðva Reykjavíkurborgar í þessu samhengi.

„Í skólastefnu Reykjavíkurborgar er kveðið á um að einelti skuli ekki liðið í skólum borgarinnar. Allir skólar setja sér eineltisáætlun eða eru með hina viðurkenndu áætlun OLWEUS. Samkvæmt foreldrakönnun er misbrestur á því að þær séu nægilega virkar og því er mikilvægt að þriðji aðili, á borð við mannréttindastjóra, leggi kalt mat á það hvort viðbragðsáætlanir starfsstöðva borgarinnar bera árangur. Samþykkt tillögunnar er áfangasigur í baráttunni gegn einelti," sagði Oddný meðal annars þegar tillagan var rædd á borgarstjórnarfundi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×