Sjá ekki vitglóru í áætlun AGS 7. desember 2009 17:37 Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson var meðal þeirra sem sátu fundinn með þeim Flanagan og Rozwadowski fyrir helgi. Fundurinn fór fram í Seðlabankanum. Mynd/Daníel Rúnarsson
Hópur Íslendinga sem sendu Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, bréf í lok október fundaði með Mark Flanagan og Franek Rozwadowski, sem fara með mál Íslands hjá AGS, fyrir helgi. Hópurinn segir enga vitglóru vera í áætlun sjóðsins. „Okkar mat er að engar forsendur séu til staðar svo viðkomandi grundvallaratrið verði að raunveruleika. Af því leiðir að áætlun AGS er brostin. Flanagan tókst ekki að hnika til sannfæringu okkar. Því miður þá sjáum við ekki neina vitglóru í áætlun AGS," segir í samantekt sem hópurinn hefur sent fjölmiðlum. Í samtektinni segir að á fundinum hafi hópurinn farið á kerfisbundin hátt í gegnum ákveðin atriði á fundinum. Reynt hafi verið að fá fram skýr svör byggð á staðreyndum. Farið var kerfisbundið í gegnum neðantalin atriði á fundinum. Lögð voru fram gögn máli okkar til stuðnings. Reynt var með öllum ráðum að fá fram skýr svör byggð á staðreyndum. Eftirfarandi atriði voru tekin fyrir: „1. Að vöruskiptajöfnuður Íslands verði jákvæður um það bil 160 milljarða á ári næstu tíu árin. Flanagan tókst ekki að sýna fram á með rökum hvernig þetta gæti orðið að veruleika. 2. Að tekjur ríkisins aukist um 50 milljarða á ári næstu árin. Flanagan tókst ekki að sýna fram á með rökum að þetta væri mögulegt. 3. Að landsframleiðsla aukist næstu árin. Flanagan tókst ekki að sýna fram á með rökum að þetta væri mögulegt. 4. Hversu hátt skuldaþol Íslands af vergri landsframleiðslu getur orðið? Flanagan snéri sig út úr því og gaf ekki skýrt svar." Fundinn sátu fyrir hönd íslenska hópsins: Gunnar Sigurðsson, Heiða B. Heiðarsdóttir, Ásta Hafberg, Einar Már Guðmundsson, Helga Þórðardóttir, Gunnar Skúli Ármannsson, Lilja Mósesdóttir, Elías Pétursson og Ólafur Arnarson. „Flanagan tókst ekki að hrekja gagnrýni okkar á sannfærandi hátt‚ óþægilegar spurningar leiddi hann hjá sér," segir í samtekt hópsins.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira