Sjálfstæðismenn ætla að leggja fram frumvarp um greiðsluaðlögun Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. febrúar 2009 17:45 Sigurður Kári Kristjánsson.
Þingflokkur sjálfstæðismanna hyggst leggja fram frumvarp um greiðsluaðlögun eða skuldaaðlögun þegar þing kemur saman að nýju. Frá þessu greinir Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður á bloggsíðu sinni í dag. Sigurður Kári segir að það hafi verið með algjörum ólíkindum að fylgjast með Jóhönnu Sigurðardóttur, nýjum forsætisráðherra minnihlutastjórnarinnar, lýsa því yfir í fjölmiðlum í gær að vegna seinagangs ráðherra Sjálfstæðisflokksins hafi frumvarp um greiðsluaðlögun eða skuldaaðlögun ekki náð fram að ganga í tíð fráfarandi ríkisstjórnar. Þessar ásakanir Jóhönnu Sigurðardóttur í garð fyrrum ráðherra og þingflokks Sjálfstæðisflokksins séu rangar. Sigurður Kári segir að fyrrverandi dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, hafi lagt frumvarp þessa efnis í þávarandi ríkisstjórn Íslands, en þingflokkur Samfylkingarinnar tekið frumvarpið í gíslingu. Það hafi hins vegar verið samþykkt í byrjun janúar úr þingflokki sjálfstæðismanna, fullbúið til afgreiðslu á Alþingi. Nú hafi þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tekið þá ákvörðun á þingflokksfundi sínum í dag að leggja málið fram á Alþingi. Það verður Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra sem leggur frumvarpið fram. Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, verður svo fyrsti flutningsmaður frumvarps um greiðslu séreignasparnaðar. Samkvæmt frumvarpinu verður heimilt að greiða út séreignarsparnað til greiðslu skulda. Árni sagði við fjölmiðla í dag að þetta frumvarp hafi verið tilbúið í fjármálaráðuneytinu í síðustu viku.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira