Innlent

Margir gæla við formannsframboð

Guðlaugur Þór Þórðarson, Bjarni Benediktsson og Kristján Þór Júlíusson segjast ekki útiloka framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi sem haldinn verður í lok mars. Þetta sögðu þeir þegar að fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis innti þá eftir viðbrögðum þeirra að loknum fundi miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokksins í dag.

Á fundinum gerði Geir grein fyrir því að hann hefði greinst með krabbamein í vélinda og hann myndi ekki gefa kost á sér til þess að leiða flokkinn eftir næsta landsfund sem fram fer í lok mars.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×