Kynslóðaskipti í núðlunum 12. október 2009 04:30 Móðir Charins rekur veitingastaðinn Gullna hliðið á Álftanesi. Hann hefur nú fetað í fótspor hennar og opnað núðlustaðinn Noodle Station.Fréttablaðið/gva
Veitingastaðurinn Noodle Station sem var opnaður nýlega við Skólavörðustíg 21a er í eigu hins þrítuga Charin Thaiprasert sem hefur staðið vaktina á staðnum alla daga síðan. „Mamma mín er kokkur og rekur taílenska veitingastaðinn Gullna hliðið á Álftanesi. Hún aðstoðaði mig mikið við að koma þessu af stað og lét mig meðal annars fá uppskriftina að súpunum sem seldar eru á Noodle Station,“ segir Charin. Móðir hans, Nok, hefur lengi starfað við veitingarekstur og sem barn aðstoðaði hún meðal annars móður sína við súpusöluvagn hennar í Taílandi. Charin flutti ásamt móður sinni og yngri bróður hingað til lands árið 1989. Fjölskyldan hefur reynt að heimsækja Taíland reglulega en Charin segir kreppuna þó hafa sett strik í reikninginn. „Við heimsækjum Taíland reglulega en eftir að kreppan skall á er flugið orðið of dýrt, þannig að það er einhver bið í næstu heimsókn.“ Noodle Station býður upp á núðlusúpur sem hafa slegið rækilega í gegn hjá viðskiptavinum. Aðspurður segist Charin þó ekki ætla að bæta við matseðilinn á næstunni, heldur halda sig við einfalda en góða matseld. „Fólk virðist vera mjög ánægt og margir hafa lýst því yfir að þetta sé besta súpa sem þeir hafi smakkað. Ég ætla þó að halda mig við einfaldan og ódýran matseðil eins og er því ég stend einn í þessu og vinn eins og skepna alla daga.“ Það var stjúpfaðir Charins, Bogi Jónsson, áður kenndur við Bogarúllur, sem stakk upp á að hann opnaði eigin veitingastað og þótti Charin sú hugmynd svo góð að hann ákvað að slá til. „Ég tók út allan sparnaðinn minn og lagði í þetta. Ég var auðvitað ekki viss hvort þetta mundi ganga í fyrstu, en svo hefur þetta gengið vonum framar.“ sara@frettablaðið.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira