Steingrímur og Jóhanna funda 31. janúar 2009 09:32 Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherraefni væntanlegrar ríkisstjórnar og Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna komu saman til fundar upp úr klukkan níu í morgun, til að ræða stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna. Þingflokkur Framsóknarflokksins tók sér frest í gær til að fara betur yfir stjórnarsáttmála Samfylkingar og Vinstri grænna og reiknað er með að framsóknarmenn skili jafnvel frá sér tillögum um nánari útfærslur á stjórnarsáttmálanum síðar í dag. Stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna er í raun lokið og nú er beðið eftir framsóknarmönnum. Flokkarnir hafa komið sér saman um skipan í ráðherraembætti, en eitt embætti er þó óklárt og gæti þar jafnvel verið um aðkomu Framsóknarmanna að ræða. Þá er líklegast að kjördagur verði 25. apríl. Þegar framsóknarmenn hafa að lokum sæst á aðgerðaráætlun væntanlegrar ríkisstjórnar, þarf samfylkingarfólk að halda flokksstjórnarfund til að kynna niðurstöðuna en Vinstri grænum dugar að boða þingflokksfund. Eins og Vísir sagði frá fyrr í morgun hefur flokksstjórnarfundi Samfylkingar sem halda átti klukkan 11:00 í morgun verið frestað um óákveðin tíma. Leiðtogar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna leggja áherslu á að ljúka málum um helgina og þá helst í dag, vegna þess tímaramma sem Ólafur Ragnar Grímsson setti viðræðunum. Eins munu leiðtogarnir helst vilja að Geir H. Haarde geti setið síðasta ríkisráðsfund fráfarandi stjórnar á Bessastöðum, áður en hann heldur utan á morgun til læknismeðferðar vegna veikinda sinna. Enn telja menn möguleika á að hægt verði að mynda nýja ríkisstjórn í dag, og munu línur í þeim efnum sennilega skýrast um hádegisbil.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Sjá meira