Vill 2,4 milljarða úr þrotabúi Lehman 7. október 2009 05:45
Íslenskur fyrrum yfirmaður hjá Lehman Brothers fjárfestingarbankanum hefur gert tæplega nítján milljóna bandaríkjadala kröfu í þrotabú bankans. Krafan jafngildir 2.355 milljónum króna. „Það kemur fram í kröfunni út á hvað hún gengur," sagði Sigurbjörn Þorkelsson þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Hann var þá staddur í Hong Kong. Sigurbjörn staðfesti að hafa gert kröfu í þrotabúið, en vildi ekki skýra tilurð hennar nánar. Hann var ráðinn yfirmaður hlutabréfaviðskipta hjá Lehman Brothers á Asíumarkaði í október 2007, og hafði því gegnt starfinu í tæpt ár þegar bankinn fór í þrot. Sigurbjörn sagði í gær „frekar ólíklegt" að hann muni fá alla upphæðina sem hann krefst úr þrotabúi síns fyrrum vinnuveitanda. Spurður hvort hann telji líklegt að fá eitthvað sagði hann: „Hver veit? Ég hef ekkert um þetta að segja." Upphæðin er ekki byggð á kaupréttarákvæðum, sagði Sigurbjörn, en vildi ekki tjá sig frekar um á hverju tæplega 2,4 milljarða króna launakrafa væri byggð. Í kröfu Sigurbjörns, sem er opinbert gagn sem Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að hann fékk bónusgreiðslur frá Lehman í formi hlutabréfa í bankanum, auk þess sem hann nýtti sér kauprétt í bréfum bankans. Fram kemur í kröfu Sigurbjörns að eign hans á bréfunum var bundin í ákveðinn tíma. Hann mátti því ekki selja elstu bréfin sem krafan byggist á fyrr en í lok nóvember 2008, og þau nýjustu ekki fyrr en í lok nóvember 2012. Sigurbjörn tók við sem yfirmaður Lehman Brothers á Asíumarkaði árið 2007, en hóf fyrst störf fyrir bankann árið 1992. Hann starfaði þar síðan, með einu fjögurra ára hléi á árunum 1994 til 1998, og varð einn af framkvæmdastjórum Lehman árið 2001. Gjaldþrot Lehman Brothers hinn 15. september í fyrra skók fjármálamarkaði um heim allan og er gjarnan talið marka upphaf hinnar eiginlegu heimskreppu. - bj
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira