Innlent

Vonbrigði að síðasta ríkisstjórn hafi ekki komist lengra varðandi ESB

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Aðalsteinn Leifsson, aðjúnkt við HR.
Aðalsteinn Leifsson, aðjúnkt við HR.

Það er mikill misskilningur að það sé hægt að leysa bráðan vanda án þess að hafa skýra framtiðarsýn, segir Aðalsteinn Leifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, um stefnu stjórnmálaflokkanna í Evrópusambandsmálum. Hann segir það vera jákvætt að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG skuli ætla sér að gera nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni til þess að hægt verði að bera niðurstöður aðildarviðræðna um ESB upp í þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingarinnar hafi lýst.  

Aðalsteinn segir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG sé mynduð til skamms tíma. Þess vegna komi það ekkert sérstaklega á óvart að hún ætli sér ekki stóra hluti í Evrópumálum. Það séu hins vegar gríðarleg vonbrigði að síðustu ríkisstjórn hafi ekki tekist að fara lengra með málið.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×