Innlent

Brenndist á fæti í hver

Hveragerði.
Hveragerði.

Maður brenndist á fæti þegar jörðin gaf sig skyndilega undan honum þar sem hann var á göngu skammt ofan við Gufudal við Hveragerði í gærkvöldi. Annar fótur hans sökk upp að hné en mikill jarðhiti var undir yfirborðinu.

Maðurinn náði að losa sig og kæla fótinn með snjó uns hann komst heim og hringdi eftir aðstoð. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi og reyndist þá vera með annars stigs bruna á fætinum. Maðurinn er kunnugur á þessum slóðum, en eftir jarðskjálftann í fyrra verður jarðhita vart á æ fleiri stöðum á þessum slóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×