Innlent

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga á nýju ári og á vef Vinnumálastofnunnar eru nú 13.280 skráðir atvinnulausir. Í lok síðasta árs voru 8982 skráðir án atvinnu og hefur þeim því fjölgað um 4300 á rúmum mánuði.

8354 karlar eru skráðir án atvinnu og 4926 konur. Atvinnuleysið er mest á höfuðborgarsvæðinu en þar eru tæplega 8400 atvinnulausir.

Vinnumálastofnun greiðir út atvinnuleysistryggingar í dag til um 9500 einstaklinga fyrir tímabilið 20. desember til 19. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×