Össur segir stjórnarsáttmála ekki eiga við Helguvík og Bakka 2. febrúar 2009 18:52
Ákvæði í stjórnarsáttmála um engin ný álver hefur hvorki áhrif á álver í Helguvík né undirbúning álvers við Húsavík, að sögn iðnaðarráðherra.Í verkefnaskrá ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, í kafla um aðgerðir í þágu atvinnulífs, segir: "Engin ný áform um álver verða á dagskrá ríkisstjórnarinnar". En hefur þetta ákvæði einhverja þýðingu í raun?"Þessi setning þýðir það eitt að það þýðir ekkert fyrir erlend álfyrirtæki að koma og banka uppá hjá iðnaðarráðherranum. Það verða engin ný áform um álver," segir Össur Skarphéðinsson í viðtali við Stöð 2.Sjálfur er Össur nýbúinn að ganga frá nýjum fjárfestingarsamningi stjórnvalda og Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Þar hófst uppsteypa kerskála síðastliðið haust en eftir að heimskreppan skall yfir hefur Norðurál leitað leiða til að halda áfram framkvæmdum.Össur segir það liggja fyrir að búið sé að taka ákvarðanir varðandi Helguvík og þeim verði ekki breytt.Þá hefur Alcoa um þriggja ára skeið undirbúið álver á Bakka við Húsavík á grundvelli viljayfirlýsinga sem í gildi eru við ríkisstjórn, sveitarfélög og orkufyrirtæki.Spurður hvort ríkisstjórnin styðji þau áform segir Össur að ríkisstjórnin styðji ekki ný áform um álver. Áform um Bakka séu hins vegar gömul áform. Það sé í gangi ákveðið samkomulag milli ríkisstjórnarinnar, Norðurþings og Alcoa og það sé í gildi.Spurður hvort orðin í stefnuyfirlýsingunni, "engin ný áform um álver verða á dagskrá ríkisstjórnarinnar," eigi hvorki við Helguvík né Bakka svarar Össur: "Já."
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Sjá meira