Vaxandi spenna í þinghúsinu 30. janúar 2009 14:36
Fæðing nýrrar ríkisstjórnar virðist ganga treglegar en búist var við. Framsóknarmenn voru ekki sáttir við þau drög að nýjum ríkisstjórnarsáttmála sem þeim voru kynnt í morgun. Þeir fengu ný drög til skoðunar í hádeginu og fundar þingflokkur Framsóknarflokksins um þau. Sumir höfðu jafnvel búist við því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir færi til Bessastaða í hádeginu til þess að tilkynna forseta um að samkomulag væri í höfn. Jóhönnu Sigurðardóttur yrði þá falið umboð til stjórnarmyndunar. Engar fregnir hafa hins vegar borist af því að sá fundur hafi verið boðaður og segir fréttamaður Stöðvar 2 sem staddur er í þinghúsinu að vaxandi spennu gæti á göngum hússins. Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafa farið af fundinum sem staðið hefur í þinghúsinu undanfarna daga og er talið að þau hafi farið til fundar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Heimildir herma að framsóknarmenn vilji fá ítarlegri tillögur um hvernig taka eigi á efnahagsmálum í væntanlegum stjórnarsáttmála og að þeim hafi fundist sáttmálinn heldur rýr í roðinu. Hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Ragnar Árnason sem hafa verið þingflokknum til ráðgjafar funduðu með honum í dag og eru þeir nýfarnir af fundinum.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Fleiri fréttir Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Sjá meira