Hjólaði á lögreglumann og situr inni í eitt ár 22. desember 2009 03:00 Maðurinn hjólaði á lögreglukonu við skyldustörf.
Rúmlega fertugur karlmaður hefur verið dæmdur í Hæstarétti í eins árs fangelsi fyrir að hjóla á lögreglumann. Föstudagsmorguninn 6. apríl 2007 var maðurinn á ferli á reiðhjóli sínu um Fellahverfi í Breiðholti. Hafði hann skömmu áður haft samband við konu sem hann hafði eitt sinn verið í tygjum við. Þar sem konan taldi sig hafa orðið fyrir endurteknu ónæði af hálfu mannsins hringdi hún til lögreglu og kvartaði yfir þessu. Fóru lögreglumenn heim til konunnar og fóru svo að svipast um eftir manninum. Lögreglukona klædd einkennisbúningi lögreglu, var stödd ofarlega á göngustíg sem er á milli fjölbýlishúsa. Kom maðurinn hjólandi upp stíginn á nokkurri ferð og lenti hjól hans á lögreglukonunni sem við það féll og handleggsbrotnaði. Hún þurfti að undirgangast aðgerð hjá bæklunarlækni sem setti spöng ofan á handlegginn og festi með fimm skrúfum. Gat hún ekki hreyft úlnliðinn eðlilega eftir brotið. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fimm mánaða fangelsi, meðal annars vegna þess að hann hafði með athæfi sínu rofið skilorð. Hæstiréttur þyngdi dóm hans vegna þessa brots um sjö mánuði.- jss
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira