Dýrkeypt gæti orðið að selja varðskipið 22. desember 2009 05:00 Skipið sigldi með allri suðurströndinni nýlega og var aðeins tuttugu sjómílur frá ströndinni á tímabili. Um borð voru 105 þúsund tonn af svartolíu.mynd/lhg „
Okkur vantar tilfinnanlega öflugt dráttarskip hingað til lands. Ef það kemur eitthvað fyrir þessi stóru olíuskip sem sigla hér við landið í vaxandi mæli þá verðum við að hafa skip til að bregðast við aðstæðum. Það gæti reynst okkur dýrt að selja skipið,“ segir Halldór B. Nellet, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðum vegna skattatillagna ríkisstjórnarinnar á föstudag að nauðsynlegt væri fyrir ríkið að draga úr útgjöldum til að koma í veg fyrir skattahækkanir. „Ég vil líka benda á þær tillögur okkar, sem mér finnst vera augljósar, að við getum hugsanlega selt það nýja varðskip sem við eigum að fá á næsta ári og söluandvirði þess gæti verið fimm milljarðar. Svona tel ég frú forseti að við eigum að vinna okkur út úr vandamálunum.“ „Ég lýsi yfir furðu minni á því að þessi hugmynd sé komin fram“, segir Halldór. „Ekki síst vegna þess að dómsmálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins [Björn Bjarnason] skrifaði undir landhelgisgæsluáætlun þegar þeir voru við völd. Þetta sýnir algjöra stefnubreytingu af þeirra hálfu.“ Halldór spyr hvort þingmenn Sjálfstæðisflokks hafi ekki fylgst með umræðunni um þær breytingar sem hafa orðið á siglingum innan íslensku lögsögunnar og tekur nýlegt dæmi um olíuskip sem fór með suðurströndinni á leið sinni vestur um haf til Bandaríkjanna. Farmur þess var yfir hundrað þúsund tonn af olíu og Halldór vill að fólk íhugi hvað það þýðir fyrir lífríki hafs og stranda ef ekkert er skipið til að bregðast við neyðaraðstæðum. Ferðum þessara skipa fjölgi sífellt og Íslendingar verði einfaldlega að vera sjálfbjarga ef koma þurfi stórum skipum til aðstoðar. „Við búum ekki að sama skipafjölda og er í Noregi og Evrópu þar sem er mikið af vel útbúnum dráttarskipum. Hér er ekkert slíkt skip og þess vegna var ráðist í smíði nýja varðskipsins,“ segir Halldór. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir að ekki sé hægt að útiloka það að varðskipið verði selt. „En við spurningunni hvort þetta hafi verið rætt af alvöru innan ríkisstjórnar eða formlega þá er svarið einfaldlega nei.“ Smíði á nýju fjölnota varðskipi Landhelgisgæslu Íslands stendur yfir hjá ASMAR, skipasmíðastöð sjóhersins í Talcahuano í Chile, og verður tilbúið til afhendingar á fyrri hluta næsta árs.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Sjá meira