Æsilegt áhlaup á Kristjaníu 22. desember 2009 02:00 Jökull í íslenska lögreglubúningnum í áhlaupi á Kristjaníu. Íbúi þar taldi að nafnið hans væri vinstra megin á búningnum og skrifaði það vandlega niður.
Jökull Gíslason lögreglumaður var í níu vikna skiptidvöl hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn á dögunum. Þar kynntist hann gengjastríðum, starfsemi Vítisengla, gagnsemi lögregluhunda, mansalsmálum og fleiru. Hann tók meðal annars þátt í áhlaupi á Kristjaníu með dönsku óreirðalögreglunni, sem hann segir frá hér. „Fjörið byrjaði með því að ég fékk að vera með í áhlaupi á Kristjaníu,“ segir Jökull Gíslason lögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Jökull var í níu vikur í skiptidvöl hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn og kynntist þar allt öðru umhverfi en lögreglan á Íslandi starfar í. Hann kynntist gengjastríðum, rótgróinni starfsemi Vítisengla. gagnsemi tuga lögregluhunda, mansalsmálum og svo mætti áfram telja. „Óeirðalögreglan fer inn í Kristjaníu tvisvar eða oftar í mánuði,“ útskýrir Jökull. „Það er þó nokkuð síðan íbúar svæðisins misstu yfirráð sín yfir hasssölunni og í dag eru þeir í samkeppni um markaðinn við Vítisengla með tilheyrandi ofbeldi.“ Þegar lögreglan kom inn á svæðið, hurfu allir hasssalarnir eins og hendi væri veifað, því þeir hafa komið sér upp öflugu viðvörunarkerfi. „Það gerði ekkert til, hundarnir komu og þennan dag var lagt hald á þrjú kíló af hassi sem fundust falin um svæðið. Ég var ekki í lögreglubúningi þennan dag og ef heimamönnum er illa við lögreglumenn í einkennisfötum þá er þeim enn verr við þá sem ekki í búningi. Meðan ég dvaldi þar tóku ýmsir af mér myndir þannig að ég er lítið á leiðinni þangað í frítíma mínum í framtíðinni.“ Skömmu síðar var farið í annað áhlaup í Kristjaníu og í þetta sinn klæddist Jökull íslenskum lögreglubúningi. „Þótt ég væri í búningi nú þá komu nokkrir heimamanna til mín og sögðust muna eftir mér frá því síðast og voru lítt hrifnir af þessu „alþjóðlega“ samstarfi dönsku lögreglunnar. Kona kom til mín og sýndi mér þegar hún skrifaði nafnið mitt í bók. Ég var ekkert að leiðrétta hana þar sem hún taldi að nafnið mitt væri „Lögreglan“ því augljóslega var Police vinstra megin á búningnum og því hlaut hitt að vera nafnið. Þannig að einhvers staðar í Kristjaníu er skráð að lögreglumaðurinn „Lögreglan“ hafi verið þar. Jökull eyddi tveimur dögum með hundadeild lögreglunnar ytra og þótti mikið til koma. „Ég fékk að fylgjast með sprengiefnaleitarhundum og fíkniefnaleitarhundum en mest þótti mér til lögregluhundanna koma. Þeir eru þjálfaðir til að leita uppi fólk og sönnunargögn og ná mönnum og yfirbuga þá. Hundarnir finna allt og alla. Þeir standa kyrrir meðan sá sem þeir finna gerir það. Ef hann hreyfir sig fara þeir samstundis í hann.“jss@frettabladid.is
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fleiri fréttir Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Sjá meira