Klárlega markaður fyrir Sumar á Íslandi 8. júlí 2009 14:22 Buffið er með lag á plötunni Sumar á Íslandi. „
Lagið frá Buffinu heitir Prinsessan mín og er fyrsta lagið sem sveitin sendir frá sér sem er ekki eftir neinn meðlim sveitarinnar," svarar Hannes Friðbjarnarson meðlimur Buff aðspurður út í þeirra framlag á nýrri safnplötu sem ber heitið „Sumar á Íslandi," með vinsælustu hljómsveitum landsins. „Lagið er eftir Dr.Gunna og kom það til þannig að Doktorinn hreinlega bað okkur um að taka lag eftir sig, fyrir rúmu ári síðan, þá var staðan hjá okkur þannig að við vorum í óðaönn að klára plötuna okkar sem kom út fyrir síðustu jól, og fannst eins og við gætum ekki einbeitt okkur að þessu lagi," segir Hannes. Sálin hans Jóns míns tekur líka lag á plötunni. „En vildum þó fá að halda í það, sem var ekkert mál. Svo á þessu ári þegar við vorum að spá í nýjum lögum þá var þetta lag mjög ofarlega á lista. Það er hresst og skemmtilegt og við náðum allir að tengja mjög vel við það." „Svo hefur það blundað lengi hjá okkur að gera lag með miklum hljómborðum og hárri kúabjöllu svo þetta varð útkoman. Dr.Gunni kann að búa til hressandi lög og við settum okkar stíl á það, sem er greinilega að virka því það er búið að vera mjög vinsælt í sumar og fólk tekur vel við sér á böllum þegar það er spilað," segir Hannes. Baggalútur lætur sig ekki vanta þegar sumarsmellir eru annars vegar. Klárlega markaður fyrir svona plötur „Það er klárlega markaður fyrir svona plötur á Íslandi. Þarna er að finna vinsælustu lögin í dag í bæði popp og rokkdeildinni. Þessi lög hafa ekki komið út á geisladiski áður svo að við erum bjartsýnir," segir Jón Þór Eyþórsson hjá útgáfufyrirtækinu Senu sem getur út plötuna. „ Þetta er mjög blönduð plata svo að hún er fyrir alla. Rennur ljúflega í gegn," segir Jón Þór.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira