Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði rannsakar nú innbrot og þjófnað í steinasafn að Teigarhorni í Berufirði og óskar eftir liðsinni almennings. Vísir sagði frá því í morgun hvernig óprúttnir þjófar fóru inn á bóndabæinn að Teigarhorni og stálu hátt í 500 geislasteinum.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni þá er talið að þjófarnir hafi brotist inn á bæinn einhvern tímann í síðustu viku. Þar stálu mjög merkilegum náttúrugripum aðallega geislasteinum.
Talið er að um sé að ræða allt að 500 gripi sem var stolið.
Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar varðandi þetta mál svo sem mannaferðir við Teigarhorn síðustu vikuna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði í síma 470-6142.
Einnig er hægt að koma upplýsingum á netfangið eski@tmd.is.