Stórþjófnaður: Fimm hundruð geislasteinum stolið Valur Grettisson skrifar 17. október 2009 11:00
Verðmætu steinasafni var stolið af bænum Teigarhorni við Djúpavog fyrir helgi en þjófnaðurinn uppgvötaðist ekki fyrr en í gær. Eigandi steinanna, Jónína Ingvarsdóttir, telur að þjófurinn hafi ásælst steinanna sérstaklega. Jónína segir að steinarnir, sem eru svokallaðir geislasteinar, eða Zeolíte-steinar, séu milljóna króna virði. „Þeir eru minnsta kosti fimmtán milljón króna virði," segir Jónína sem hefur safnað steinunum í sautján ár. Þjófurinn, eða þjófarnir, rifu upp plötu sem var negld fyrir gluggann á bænum en sjálf var Jónína í höfuðborginni ásamt manni sínum sem er með heilakrabbamein. Þegar hún snéri aftur á Teigarhorn sá hún að þjófurinn var búinn að stela hátt í fimmhundruð geislasteinum. Geislasteinn. „Og það var búið að pakka þeim inn og allt," segir Jónína forviða sem grunar að þjófarnir hafi ekki ásælt neitt annað en steinana enda var ekkert annað tekið á bænum fyrir utan pappír til þess að pakka þeim inn. Spurð hvort það sé hægt að koma slíkum steinum í verð segir Jónína að það sé helst erlendis sem menn geti það. Hún segir að minnstu steinarnir sem voru teknir hafi verið nokkur grömm, þyngsti steininn vó fjörtíu kíló. Steinarnir voru ótryggðir. Teigarhorn er heimsfrægt fyrir framúrsakarandi safn geislasteina. Svæðið í kringum Teigarhorn var friðlýst árið 1975 vegna geislasteinanna og er einn þekktasti fundarstaður slíkra steina í heiminum. Geislasteinar eða zeólítar eru mjög algengir sem holufyllingar í bergi hér á landi og er Ísland þekkt á alþjóðavísu fyrir geislasteina. Geislasteinar eru jafnan hvítir eða glærir að lit en stundum litaðir af aðkomuefnum. Hafi einhver upplýsingar um þjófnaðinn eða staðsetningu steinanna getur sá hinn sami haft samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði í síma: 470 6140
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Fleiri fréttir Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Sjá meira