Enn fjöldi mótmælenda á Austurvelli sev skrifar 21. janúar 2009 02:55 MYND/Haraldur Ási Lárusson
Enn eru nokkur hundruð mótmælendur á Austurvelli. Fólkið ber trommur og reynir að halda lífi í bálköstum sem lögregla slekkur jafnharðan í. Óeirðalögregla slökkti um tvöleitið í bálkesti sem logað hafði í frá því fyrr í kvöld við inngang alþingishússins. Mótmælendur hlóðu þá nýjan bálköst við styttuna af Jóni Sigurðssyni og kveiktu í. Þegar klukkan var að nálgast þrjú slökkti lögregla í honum líka. Nokkrir trébekkir, ruslatunnur og annað lauslegt af Austurvelli hefur orðið eldinum að bráð í kvöld. Svo virðist sem piparúða hafi verið beitt þegar lögregla réðst til atlögu við seinni bálköstinn, því nokkrir mótmælenda sáust skola úr augum sínum, eða leituðu sér aðhlynningar hjá sjúkrabíl sem staddur var við Dómkirkjuna. Þar skammt hjá var slökkviliðsbíll einnig til reiðu. Þetta virtist ekki draga úr mannskapnum, því áfram var haldið að berja trumbur og safna í nýjan bálköst. Einn mótmælenda sem Vísir ræddi við sagðist hrærður yfir þeim stuðningi sem þeir hefðu fengið. Veitingastaðir við Austurvöll hefðu til að mynda hleypt mótmælendum í gegnum staðina með þungan eldivið á bálið.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Sjá meira