Þorskarnir svo stórir að vélarnar ráða ekki við þá 5. febrúar 2009 18:52
Þorskarnir sem verið er að landa í Grindavík þessa dagana eru svo stórir að flökunarvélarnar ráða ekki við þá. Golþorskar veiðast í mun ríkari mæli en verið hefur um árabil og telja sjómenn að fiskurinn hafi verið í mjög góðu æti.Það var blíða í Grindavík í dag en svo vel hefur viðrað til róðra að undanförnu að varla hefur dottið út dagur frá áramótum. Bátarnir hafa aðeins þurft að sigla í tvo tíma út frá Grindavík til að komast í mokfiskerí.Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf., segir aflabrögð mjög góð. Bátarnir séu að koma með mikinn afla að landi. Þrátt fyrir aukinn þorskkvóta þurfi enn að beina bátum frá þorskinum yfir í aðrar tegundir. Viðbótin auðveldi mönnum þó að skipuleggja veiðarnar.Grindvískir sjómenn eru reyndar alvanir golþorskum en yfirleitt síðla vetrar þannig að það kemur skemmtilega á óvart að sjá hve hátt hlutfall er af stórþorski nú en allt upp í 40% hefur verið yfir 8 kíló að þyngd. Flökunarvélarnar ráða ekki við svo stóra fiska og því verður að handflaka. Menn kvarta þó ekki enda fæst hærra verð fyrir stóra fiskinn.Að hætti Grindvíkinga verða þessir þorskar að saltfiski sem Spánverjar og Portúgalar greiða fyrir með verðmætum evrum. Um 400 manns vinna hjá Þorbirni, sem er eitt af stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum landsins. Fyrirtækið gerir út sjö fiskiskip, þrjá togara og fjóra línubáta.Eiríkur Tómasson segir það samdóma álit sjómanna, að minnsta kosti þeirra sem sækja sjóinn vestantil á landinu, að fiskurinn sé mjög vel haldinn. Hann hafi greinilega verið í mjög góðu æti. Það sé mikil lifur í honum og óvenju laus fita sé í þorskinum. Það sé merki um að hann hafi komist í gott æti í haust. Stór fiskur sé að veiðast í miklu meira mæli en verið hefur um árabil. Það sé að þakka friðunaraðgerðum á undanförnum árum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira