Mónitor í sjónvarpið 12. júní 2009 06:00 Erna Bergmann er á því að þessi þáttur sé nákvæmlega það sem vantar í íslenskt sjónvarp nú á þessum síðustu og verstu. fréttablaðið/rósa „
Ég var að koma inn úr fyrstu tökum. Vá! Þetta er í fyrsta skipti sem ég segi þetta," segir Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri tímaritsins og vefsins Mónitors. Nú er Mónitor á leið á skjáinn, á Skjá einum. Nýr sjónvarpsþáttur hefst þar í þessum mánuði á „prime time" á miðvikudögum í sumar. Það er útgáfufyrirtæki Mónitors, Media ehf., sem framleiðir þættina fyrir Skjá einn. Umsjónarmaður verður Erna Bergmann og mun hún, að sögn Atla, leita að áhugaverðu fólki og atburðum og varpa ljósi á þá hluta samfélagsins sem flestir vita af en fæstir vita nokkuð um. „Svo verður spéfuglinn frá Mosfellsbæ, Steindi Jr. sjálfur, með „skets" eða atriði í hverjum þætti. Hann hefur birt marga hrikalega fyndna „sketsa" á Netinu og fær núna tækifæri til að láta ljós sitt skína í sjónvarpinu. Ég veit ekki mikið um efnistökin, en mér skilst að frægir kraftajötnar komi fyrir í einum „sketsinum"," segir Atli Fannar. Hann nefnir að auki innslög frá stúlku sem kallar sig Lambi, „já, Lambi", en þau innslög verða í líkingu við „Jay-walk-ið" hans Jay Leno. Hún spyr fólk á götunni spjörunum úr og afhjúpar annað hvort snilligáfu eða fávisku Íslendinga. Þarna er greinilega stuðst við eitt og annað sem sjónvarpsáhorfendur þekkja úr bandarískri sjónvarpsþáttagerð. Og svo er einnig í tilfelli Atla Fannars en um frumraun hans í sjónvarpi verður að ræða í þessum þáttum. „Ég verð með nokkurs konar fréttaskýringu í anda Daily Show í hverjum þætti. Grín og dramatík og bull - raunveruleg mál tekin fyrir á klisjukenndan og jafnvel amerískan hátt. Jafnvel snúið á hvolf," segir þessi verðandi sjónvarpsstjarna. Atli segir ekki tímabært að segja frá fyrsta þættinum, þar sem hann er ekki tilbúinn. „Þarf að sjá heildarmyndina, en hann fer allavega í loftið 24. júní." „Ég held að þetta verði alveg stórkostlega skemmtilegt og einmitt það sem vantar í íslenskt sjónvarp á þessum síðustu og verstu," segir Erna umsjónarmaður þáttarins. Hún segist í góðu stuði fyrir þetta nýja starf en hún er nýlega útskrifuð úr Listaháskóla Íslands sem fatahönnuður. „Svo fékk ég þetta skemmtilega tilboð og ákvað að taka þátt." Erna er ekki alveg ókunnug starfi við fjölmiðla en hún var með sjónvarpsþátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus ásamt með vinkonu sinni Ellen Loftsdóttur sem hét Bak við böndin og var tónlistarþáttur.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira