Skipið slær í gegn í DK 13. júní 2009 05:30 Stórblaðið gerir Stefáni hátt undir höfði með opnuviðtali - sem reyndar var tekið fyrir ári og hefur verið á salti síðan. „
Jájá, það er einhver djöfullinn danskur í gangi," segir Stefán Máni rithöfundur. Sem ekki getur kvartað undan viðtökum þeim sem bók hans Skipið er að fá um þessar mundir úti í Danmörku. Í dag birtist opnuumfjöllun um Stefán Mána og viðtal í stórblaðinu Politiken. Og í glænýjum dómi í Jyllands-Posten fær Skipið fimm stjörnur af sex mögulegum. „Den syvende krimi fra Stefán Máni er sublim," skrifar Lars Ole Sauerberg. Enda kvartar Stefán Máni ekki í samtali við blaðamann Fréttablaðsins því þó Skipið hafi fengið góða dóma á Íslandi þá er hún kom út virðast Danirnir ekki síður kunna að meta ritið: „Jájá, þetta er rosa flottur dómur. Bókin virðist vera að falla í kramið. Ekki slæmt að fá svona flott start í Danmörku. Bókin kemur út í Svíþjóð í haust og þetta hjálpar öllu öðru. Þetta er fínn skandinavískur meðbyr." Og svo enn sé vitnað í Sauerberg: „Stefán Máni har skrevet en fandenivoldsk sømandsskrøne, der kombinerer den moderne action-genre med gamle tekster." Stórblaðið Politiken gerir svo Stefáni hátt undir höfði með opnugrein sem birtist nú í dag. Þar er mynd af Stefáni vígalegum við skurðarborðið en fyrirsögn viðtalsins er „Fra fiskefileterer". Tine Maria Winther skrifar og greinir frá því í undirfyrirsögn að þegar Skipið kom út á Íslandi hafi þau rætt við hann um það hvernig það væri að skrifa blóðugar glæpasögur í landi þar sem glæpatíðnin væri lág. Hvað var það sem danski blaðamaðurinn vildi vita er spurt og Stefán segir pollrólegur að það hafi bara verið „same old". Hann vill ekki meina að spurningar Danans hafi verið frábrugðnar því sem hann á að venjast á Íslandi. „Ég man þetta varla. Það er örugglega ár síðan hún kom og tók þetta viðtal. Þetta er mér ekki í fersku minni. Það hefur verið á ís. Svo hef ég verið í netsambandi við hana meðan hún var að ganga frá þessu núna. Hvaðan ég kem og hvað ég er að pæla." Stefán Máni skilaði nýverið inn til útgefanda næstu bók sinni sem væntanleg er í haust. Titill þeirrar bókar er „Týndir dagar". Hvað sem verður því Stefán segir að það kunni að breytast. Sú bók er nú í hakkavél forleggjarans, Stefán segist eiga eftir að fá hana aftur í hausinn með athugasemdum.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Sjá meira