Kaupþingsgögnin voru sótt í vetur 13. júní 2009 05:30 Valtýr Sigurðsson
Gögn um niðurfellingu á persónulegum ábyrgðum lykilstarfsmanna Kaupþings töfðust mánuðum saman á leiðinni frá embætti ríkissaksóknara til sérstaks saksóknara. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir að þetta megi meðal annars rekja til þess að tafir urðu á stofnun embættis sérstaks saksóknara, en bendir um leið á að þriggja mánaða töf sé ekki mikið, miðað við það sem gengur og gerist, jafnvel í nauðgunarmálum. „Eitt af fyrstu verkum sérstaks saksóknara var að sækja bankamálin til mín og þar á meðal þetta mál. Síðan spyrst kærandi fyrir um málið í maí og þá kemur í ljós að starfsmenn sérstaks saksóknara finna þetta ekki hjá sér. Þá var þeim sent afrit," segir Valtýr. Hann hafi ákveðið í byrjun nóvember að aðhafast ekki í málum tengdum bankahruninu og tilkynnt dómsmálaráðuneyti að hann biði skipunar sérstaks saksóknara. Málið hafi komið til hans í lok nóvember, en stofnun embættis sérstaks saksóknara dregist fram í janúar. Málið hefur komist í hámæli þar sem sonur Valtýs, Sigurður, er framkvæmdastjóri Exista, aðaleiganda gamla Kaupþings. Dómsmálaráðherra íhugar víst að biðja um skýrslu um þessa töf. „Ég hlýt að fagna því að ráðherra hefur áhuga á töfinni, því ég hef bent á að ég hafi ekki aðstöðu til að fylgja eftir málshraðareglum í þeim málum sem ég legg mesta áherslu á, ofbeldis- og kynferðisbrotamálum. Þau mál eru jafnvel mæld í árum. Það væri því kærkomin stefnubreyting ef stjórnvöld sýndu áhuga á að halda uppi eðlilegum málshraða og forgangsraða," segir Valtýr.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira