Finna ekki skip í staðinn fyrir Herjólf 13. júní 2009 04:30 Þarna er Herjólfur í ólgusjó en það gæti orðið erfitt fyrir Eyjamenn að stíga ölduna þegar Herjólfur fer á þurrt í september.mynd/óskar friðriksson
Erfiðlega gengur að finna ferju sem gæti leyst Herjólf af þegar hann verður settur í slipp í byrjun september næstkomandi. Eistneska ferjan St. Ola sem hlaupið hefur í Herjólfs skarð síðustu ár er ekki til taks að þessu sinni. Ráðgert er að viðgerðin taki tvær vikur en Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjabæ, segir að af fenginni reynslu megi búast við því að Herjólfur verði frá í þrjár til fjórar vikur. Kristján Möller samgönguráðherra segir að vel komi til greina að fá ferjuna Baldur sem siglir yfir Breiðafjörð í afleysingarnar. Elliði segir þann kost ekki koma til greina af hálfu Eyjamanna. „Ég gerði ráðherra grein fyrir því að við yrðum að gera kröfu um skip sem væri sambærilegt við Herjólf í flutningagetu enda annar það skip vart þörfinni í dag," segir Elliði. „Minna skip með lakari þjónustu kæmi því ekki til greina af okkar hálfu. Baldur kann að vera ágætis skip en ég þekki ekki hvort það hefur haffærni á siglingaleiðinni milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja en sú siglingaleið er ein sú erfiðasta í heimi." Herjólfur tekur um 500 manns og 60 bíla en Baldur aðeins 45 bíla og 350 farþega. „Hafa þarf hugfast að í Vestmannaeyjum búa nú tæplega 4.200 manns," segir Elliði. „Atvinnulífið og samfélagsgerðin er þannig að þörfin fyrir greiðar samgöngur er á fáum stöðum meiri en hér. Fyrirtækin þurfa að koma hundruðum tonna af vörum og hráefnum til og frá Eyjum í hverri viku auk þess sem þúsundir bæjarbúa og gesta nota skipið í hverri viku. Okkar krafa er sú að það skip sem leysir Herjólf af sé sambærilegt við Herjólf. Við erum tilbúin til að vera ríkinu innan handar við að finna slíkt skip ef leit þeirra gengur illa." Kristján segir ástandið hins vegar vera þannig að Eyjamenn verði kannski að gera sér Baldur að góðu. „Svo er mikilvægt að undirbúa allt vel þannig að skipið verði ekki lengur en tvær vikur í slipp. Á þessum tíma verður einnig mesti ferðamannatíminn genginn yfir. Svo mega Eyjamenn ekki gleyma af hverju er verið að þessu, það er til dæmis verið að gera breytingar á Herjólfi svo að hann geti komið að bryggju í Landeyjahöfn sem verður stór samgöngubót fyrir Eyjamenn og landsmenn alla."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira