Fjárframlög aukin í rannsókn á hruninu 13. júní 2009 04:00 Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon greindu frá fyrirhuguðu lagafrumvarpi um kjararáð sem mun ákvarða laun æðstu stjórnenda opinberra fyrirtækja. Einnig var greint frá fyrirhuguðu frumvarpi um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu.FRÉTTABLAÐIÐ/aRNÞÓR „
Við munum efla embættið og væntanlega fjölga saksóknurum," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með blaðamönnum í gær. Steingrímur sagði að ákveðið hefði verið að auka fjárframlag til embættis sérstaks saksóknara. Óljóst er hversu mikið framlagið muni hækka. Aukningunni er ætlað að tryggja viðunandi aðstöðu rannsakenda og kemur í kjölfarið á gagnrýni Evu Joly á umgjörð rannsóknarinnar. Greint var frá fyrirhuguðu frumvarpi til laga um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Frumvarpið felur í sér að Alþingi getur með einföldum meirihluta boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá er gert ráð fyrir að byggt verði á núverandi kosningakerfi og engin skilyrði um lágmarksþátttöku. Einnig kom fram að gert er ráð fyrir því að boðað verði til kosninga með að minnsta kosti þriggja mánaða fyrirvara. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra greindi frá því að Hagfræðistofnun og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hafi verið falið að vinna stöðumatsskýrslu sem nær allt aftur til ársins 1990 og fram til dagsins í dag. Skýrslunni er ætlað að meta árangur efnahagsaðgerða á því tímabili. Skýrslan á að vera tilbúin í september á þessu ári. Steingrímur greindi einnig frá því að tillögur um eigenda- og eignarhaldsstefnu á fyrirtækjum í eigu ríkisins hafi verið kynntar á ríkisstjórnarfundi. Tillögurnar fela í sér að eignarhald ríkisins á bönkum og fjármálastofnunum verði fært til sjálfstæðra aðila sem fara með eignarhaldið og eftir eigendastefnu ríkisins. Frumvarp er væntanlegt í næstu viku. Áætlað er að aðgerðir í ríkisfjármálum verði kynntar í næstu viku. Steingrímur telur ekki nauðsynlegt að grípa til uppsagna hjá hinu opinbera. Hugsanlegt er þó að starfsfólki muni fækka þar sem ekki verður ráðið í stöður sem losna. Greint var frá fyrirhuguðu frumvarpi um kjararáð á vegum ríkisins. Kjararáðinu er ætlað að ákvarða laun æðstu stjórnenda opinberra fyrirtækja. Engin laun í opinbera kerfinu munu verða hærri en laun forsætisráðherra. Ákveðið hefur verið að fresta þjóðlendukröfulýsingu ríkisins. Stóð til að ljúka þeirri vinnu fyrir 2011.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira