Fasteignamat lækkar í raun um tíu prósent 13. júní 2009 06:00 Þorsteinn Arnalds aðstoðarframkvæmdastjóri, Margrét Hauksdóttir aðstoðarforstjóri og Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarmaður í Fasteignaskrá, kynna niðurstöður fasteignamats fyrir árið 2010 á blaðamannafundi í gær. fréttablaðið/arnþór
Heildarmat fasteigna lækkar um 0,3 prósent á árinu 2010 samkvæmt nýju mati frá Fasteignaskrá Íslands. Ný reikniaðferð var hins vegar tekin í gildi fyrir árið 2010 og mætti áætla að munurinn sé í raun 10 prósent, að sögn Þorsteins Arnalds, aðstoðarframkvæmdastjóra mats- og hagsviðs Fasteignaskrár Íslands. Í gamla matinu hafi verið kerfisbundin skekkja. Samkvæmt matinu, sem taka ber með fyrirvara sökum nýrra reikniaðferða, hækkar mat á íbúðarhúsnæði um 2,5 prósent. Fjölbýlishús hafa hins vegar lækkað að raunvirði um 30 prósent frá því snemma á árinu 2008, segir Þorsteinn. Matið fyrir 2010 gerir ráð fyrir að mat á atvinnuhúsnæði lækki um 6 prósent, jarðir lækka um 2,2 prósent og sumarbústaðir lækka um 5 prósent. Sveitarfélög mega innheimta 0,5 prósent af fasteignamati íbúða í skatta og 1,32 prósent af öðrum fasteignum. Fasteignaskattur er aðskilinn útsvarinu. Tekjur á þessu ári vegna skattsins skila um 41 milljarði. Fasteignamat hefur einnig áhrif á holræsa-, vatns-, og lóðarleiguskatt sveitarfélaganna. Fasteignamatið 2010 er mun hærra samkvæmt nýju reikinaðferðinni en fyrir árið í ár. Það þýðir meiri tekjur fyrir sveitarfélögin. „Þetta er jákvætt fyrir sveitarfélögin en neikvætt fyrir skattgreiðendur,“ segir Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor. Nýja aðferðin er að hans mati betur til þess fallin að gera verðmatið nákvæmara. Hann telur jafnframt að veðrými fasteigna aukist með háu fasteignamati. Lækkun á fasteignamati hefur óbein áhrif á verðbólgu í gegnum skattheimtu sveitarfélaganna. Því meira sem fasteignamat lækkar, því meira má gera ráð fyrir að verðbólgan lækki. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og stjórnarmaður í Fasteignaskrá Íslands, segir fasteignaskatt sveitarfélaga vera stofn sem ekki hafi verið nýttur að fullu. Í Kópavogi er skatturinn 0,259 prósent af fasteignamati íbúða, 0,268 prósent í Reykjanesbæ, 0,22 prósent í Garðabæ, 0,24 prósent í Hafnarfirði, 0,32 prósent á Akureyri og 0,214 prósent í Reykjavík. Sigrún segir nýju reikniaðferðina, þar sem hver fasteign er endurmetin árlega í ljósi kaupsamninga sem gerðir eru um sambærilegar eignir, mjög til bóta og sýni betur markaðsvirði fasteigna. Áður var fasteignaverð framreiknað frá ári til árs og mat fylgdi ekki að fullu breytingum á markaðsverði. Í nýju útreikningunum eru teknir inn eiginleikar sem hafa áhrif á matið, eins og staðsetning, flatarmál og byggingarár. Staðsetning getur haft mikil áhrif á fasteignir. Þannig getur sama hús í Grafarvogi verið metið 54 prósent dýrara í Suður-Þingholtunum. Ef hús er flutt úr Suður-Þingholtum yfir á Miklubraut mundi fasteignamatið hins vegar lækka um 79 prósent. Fasteignamat ársins 2010 miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2009. Fasteignaskrá sendir í næstu viku út tilkynningar til fasteignaeigenda þar sem matið er kynnt. „Matið berst í síðasta lagi á fimmtudag,“ sagði Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Fasteignaskrár.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Fleiri fréttir Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Sjá meira