Fjárlagagatið brúað með skattahækkunum Höskuldur Kári Schram skrifar 13. júní 2009 18:45
Fjárlagagatið á þessu ári verður að mestu brúað með skattahækkunum og minna um niðurskurð að sögn forsætisráðherra. Ríkisstjórnin fundaði tvisvar í dag um ríkisfjármálin. Boðað var til auka ríkisstjórnarfundar í Ráðherrabústaðnum klukkan hálf ellefu í morgun til að ræða stöðu ríkisfjármála. Að þeim fundi loknum komu aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar sveitarfélaganna á fund ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin þarf að brúa 20 til 25 milljarða króna fjárlagagat á þessu ári og alls um 170 milljarða á næstu þremur árum. Hingað til hefur ríkisstjórnin talað um blandaða leið í þessu samhengi, skattahækkanir og niðurskurð. „Menn eru að átta sig á hvað þeir treysta sér í mikinn rekstrarniðurskurð núna á miðju ári og það er mjög erfitt bæði varðandi reksturinn og tilfærslurnar þannig að það verðu meira lagt á skattabreytingar á þessu ári. Síðan munu frekast jafnast út hlutföllin árið 2010 milli þessara erfiðu liða," segir Jóhanna Sigurðardóttir. Ríkisstjórnin hefur ekki mikinn tíma til stefnu enda þarf að klára málið fyrir lok sumarþings um næstu mánaðamót. Stefnt er að því að niðurskurðarpakkinn verði tilbúinn í lok næstu viku. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar mættu aftur til fundar klukkan tvö strax eftir að fundi forsætisráðherra með aðilum vinnumarkaðarins og fulltrúum sveitarfélaga lauk. Forseti ASÍ segir nauðsynlegt að ríkisstjórnin leggi fram heildarsýn í ríkisfjármálum sem fyrst til að ýta á frekari stýrivaxtalækkanir. „Þannig að við erum hér að kalla eftir því að fá uppstillingu á þessum ríkisfjármálum sem getur gagnast seðlabankanum til að taka tilteknar ákvarðanir," Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. Undir þetta tekur formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga „Ég legg áherslu á að þá sé þetta bara einn heildarpakki. Við vitum alveg frá a til ö hvaða stefna er tekin og hvert er hlutverk hvers og eins í þeirri stefnu. Við vitum að við þurfum að taka á málum, það er alveg ljóst," segir Halldór Halldórsson
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira