Listaverkin sem þjóðin á - kannski 10. júlí 2009 06:30 Halldór Björn innan um þjóðargersemar Fréttablaðið/stefán
Þjóðin á verkin en spurt er hvort þjóðin þurfi að greiða fyrir þau dýrum dómum án þess að hafa nokkru sinni fengið greitt fyrir þau þegar þau gleymdust við einkavæðingu bankanna. „Eignarhald núna? Já. Það er enginn í vafa um, það er alveg viðurkennt, að þetta eru verk í þjóðareign. Vandamálið er að skilanefndirnar eru ekki reiðubúnar að viðurkenna alfarið rétt þjóðarinnar til að eiga þessi verk án þess að borga fyrir þau,“ segir Halldór Björn Runólfsson listasafnsstjóri í Listasafni Íslands – en þar verður í dag opnuð gríðarlega spennandi sýning á verkum í eigu ríkisbankanna þriggja. Eitt af mörgu undarlegu í tengslum við einkavæðingu bankanna er hvernig staðið var að mati á listaverkum sem í þeirra eigu voru (og eru). Þau voru sem sagt ekki metin. Þeir sem stjórnuðu sölu bankanna á sínum tíma stóðu svo „vel að verki“ og voru að flýta sér svo mjög að koma bönkunum í einkaeign, að það gleymdist gersamlega að taka með í reikninginn ómetanlega listaverkaeign þeirra þegar bankarnir voru verðlagðir. Einhverjir helstu dýrgripir íslenskrar listasögu – þjóðargersemar – fóru þar fyrir ekkert og einkennilegt að enginn hafi nokkru sinni fengið að súpa seyðið af því. En það er með hina meintu ábyrgð í þessu eins og öðru „hér á landi á“. Safneign bankanna þriggja er um fimm þúsund verk en slá má á að bankarnir hafi bætt við um fimm hundruð verkum frá einkavæðingu. Halldór Björn segir það augljóslega skandal hvernig var staðið að málum – en segja má þeim til hróss sem héldu utan um listaverkaeignina meðan bankarnir voru í ríkiseigu að þeir stóðu sig. Landsbankinn lagði upp úr að kaupa verk eftir gömlu meistarana en Kaupþing nútímamyndlist. Og Halldór Björn er þeirrar skoðunar að sérkennilegt sé ef skilanefndirnar halda því til streitu að þjóðin greiði dýrum dómum fyrir þau verk sem voru í hennar eigu en voru gefin í ógáti við einkavæðingu – verk sem kannski eru um 4.500. „Það væri ósanngjarnt.“ Þá er erfitt að verðmeta verkin vegna ástandsins sem er á íslensku krónunni. „En þetta er sýningin sem almenningur hefur verið að bíða eftir,“ segir Halldór. Á sýninguna hafa verið valin um 90 verk í eigu ríkisbankanna og um 40 úr safni Listasafns Íslands eða alls um 130 verk. Þeirra á meðal Hvítasunnudagur eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval, Gullfjöll eftir Svavar Guðnason og Fjall eftir Sigurð Guðmundsson.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira