Mestir möguleikar til að draga úr notkun gróðurhúsalofttegunda eru í sjávarútvegi 13. júní 2009 04:45 Framkvæmdastjóri LÍÚ segir aðgerðirnar sem sérfræðinganefnd hafi lagt til algjörlega óraunhæfar. fréttablaðið/hari
Mestir möguleikar til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda liggja í sjávarútvegi, án tillits til kostnaðar. Talið er að tæknilega sé hægt að draga úr útstreymi vegna fiskimjölsframleiðslu um 100 prósent með rafvæðingu og draga úr útstreymi fiskiflota landsins um 75 prósent með aukinni notkun lífeldsneytis og orkusparnaðar. Þetta kemur fram í aðgerðaskýrslu sérfræðinganefndar á vegum umhverfisráðuneytisins, sem birt var í gær. „Algjörlega óraunhæft er að fara í þessar aðgerðir nema verð á lífeldsneyti verði lægra en verð á olíu,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Friðrik segir loftslagsnefnd sjávarútvegsins hafa sett fram tillögu um hvernig hægt sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda síðasta haust. Þar er stefnt að því að dregið verði úr útstreymi um 20 prósent fyrir árið 2020. Í ljósi breyttra aðstæðna þurfi hins vegar að endurmeta þá skýrslu. Í skýrslu sérfræðinganefndar umhverfisráðuneytisins eru raktir allir tæknilegir möguleikar sem koma til greina til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. „Ef ráðist yrði í þær allar komumst við 52 prósentum fyrir neðan grunnspá ársins 2020,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, formaður nefndarinnar. Hún segir að um sé að ræða tæknilega mögulegar aðgerðir, án tillits til kostnaðar. Ekki er þó talið mögulegt að ná fram mikilli minnkun á losun frá stóriðju. Ástæðuna segir Brynhildur þá að erfitt sé að ná fram frekari minnkun í losun stóriðju. Álverin hafi staðið sig vel í að draga úr losun PFC-efna. „Notkun rafskauta í álverum hleypir hins vegar gríðarlegu magni gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið og kolefnislaus rafskaut verða ekki komin á markað fyrir árið 2020,“ segir Brynhildur. Tillögurnar felast margar í að binda gróðurhúsalofttegundir með endurheimtingu votlendis, fara í skógrækt og landgræðslu. Í aðgerðum um samgöngumál er lagt til að ráðist verði í að styrkja almenningssamgöngur og nota sparneytnari bifreiðar. „Þetta snýst um að breyta hegðun samfélagsins,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Hún segir að settur verði í gang aðgerðahópur sem vinna á tillögur á grundvelli þessarar skýrslu. Ríkisstjórnin samþykkti á dögunum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 15 prósent fram til ársins 2020. Í samstarfsyfirlýsingu hennar kemur jafnframt fram að minnka skuli losun gróðurhúsalofttegunda um 50 til 75 prósent til ársins 2050.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Fleiri fréttir Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Sjá meira