Innlent

Búist við stjórnarskiptum á föstudaginn

Góður gangur er í stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna og er fastlega búist við því að málin klárist á föstudaginn. Fundarmenn tóku sér hlé á viðræðum í hádeginu en Steingrímur J. Sigfússon segist bjartsýnn á að málefnasamningur liggi fyrir seint í kvöld eða á morgun.

Steingrímur vísar efasemdarröddum þess efnis að vinstristjórn geti ekki tekið á efnahagsmálunum til föðurhúsanna. Hann benti á að verðandi ríkisstjórn sé ekki að taka við góðu búi og að sá sem setjist í stól fjármálaráðherra muni lenda í meiri brekku en nokkur annar forveri hans í embættinu. Lúðvík Bergvinsson þingflokksformaður Samfylkingar tók undir með Steingrími og sagði ljóst að ríkisstjórnin muni hafa þann kjark sem til þarf til að taka á málunum.

Steingrímur segir að menn muni einfaldlega gera sitt besta og hann ítrekaði hve miklu máli skipti að verja velferðarkerfið enda sé það aldrei mikilvægara en einmitt á tímum sem þessum.

Aðspurður um hvort búið sé að ná samkomulagi um kjördag í vor segir Steingrímur það enn í vinnslu. Það væru um það ákveðin álitamál sem væri verið að vinna í.

Fundurinn hefst að nýju klukkan eitt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×