Innlent

Sjaldgæft að ófrískar konur verði ofurölvi

Læknar og hjúkrunarfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við í morgun segja að það sé afar sjaldgæft að hafa þurfi afskipti af vanfærum konum vegna áfengisneyslu þeirra. Konur séu vel meðvitaðar um hættuna við áfengisneyslu á meðgöngu. Á fimmta tímanum í morgun höfðu lögreglumenn afskipti af vanfærri konu á þrítugsaldri sem var ofurölvi. Konan var að eigin sögn gengin sjö mánuði á leið. Konunni var komið undir læknishendur en síðan ekið heim.

Í umræddu tilviki er erfitt að segja um afleiðingar drykkjunar fyrir ófætt barn konunnar en það skal haft í huga að barnið fékk allt það áfengi sem móðirin innbyrti beint í æð. Sé um afmarkað tilvik að ræða eru ekki líkur á að varanlega áhrif verði. Annað er hins vegar upp á teningnum ef áfengisneysla hefur verið viðvarandi eða átt sér stað á fósturmyndunarskeiði.

Dæmi eru um konur hafi verið sviptar forræði yfir ófæddu barni sínu en það mun vera afar sjaldgæft og ekki gert fyrr en öllu önnur úrræði hafi verið reynd. Konan sem tekin var ofurölvi í nótt mun hitta ljósmóðir og hjúkrunarfræðinga áður en ákvörðun verður tekin um framhald mála.


Tengdar fréttir

Lögregla stöðvaði dauðadrukkna ófríska konu

Lögreglan hafði afskipti af konu í miðborginni í nótt sem gat vart gengið sökum ölvunar. Það vakti athygli lögreglumanna að hún var ólétt og kvaðst hún aðspurð vera komin um 7 mánuði á leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×